Kópavogsbær hefur gert rammasamning við Ístak hf., Blikkás ehf, SG Dúkari Ehf, Lýður Pétursson ehf., ÓA Verk ehf, Skagaver ehf, Timburás ehf, probygg ehf, Bygging og Viðhald ehf, Múr og flísar ehf, Gólf og vegglist ehf, ÞEÓ Trésmíði, Stálgæði ehf, Carisma ehf, AQ-rat ehf og Vélsmiðjan Stálvík ehf. um þjónustu iðnmeistara vegna viðhalds, viðbóta og endurnýjunar á fasteignum í eigu Kópavogsbæjar. Þjónustan nær til iðngreina eins og blikksmíði, dúkalagna og veggfóðrunar, múrverks, húsasmíði og málmiðnar (annarrar en blikksmíði). Bjóðendur þurftu að hafa starfsemi á stórhöfuðborgarsvæðinu eða í nágrenni til að geta sinnt verkefnum í Kópavogi. Alls bárust 24 tilboð í útboðið.